Blús eins og hann á að vera
mánudagur, apríl 18, 2005
Don't hassle the Hoff!!
Hér kemur enn ein snilldin úr smiðju The Crossroad. Ótrúlegt en satt þá er þetta lag tekið upp með einungis einni tilraun á hverja rás... Ekki allir sem afreka slíkt. Fyrir þá sem hafa áhuga er bent á að kaupa næsta Rolling Stone blað... Það er orðrómur uppi um að The Crossroad prýði forsíðuna og skipa sér þá í hóp merkra hljómsveita líkt og StillWater.
Here you go
fimmtudagur, febrúar 03, 2005
Eins og alþjóð hefur tekið eftir hefur þessi síða legið að mestu niðri í langan tíma. Ástæðan bak við það er að The Crossroad hefur átt í málaferlum við mann sem sagðist hafa samið lagið talking away á undan okkur og það heiti walkin away hjá honum. Lögfræðingur grúppunar sagði því að sniðugast væri að hafa okkur hæga á meðan þessu stóð. En nú er biðinni lokið og aðdáendur geta tekið upp gleði sína á ný. Í þessum dökka eftirmiðdagsheimi sem við lifum í er nauðsynlegt að hleypa smá ljósi inn í tilveruna og því tilvalið að loka augunum, hlusta á lagið og ýminda sér að vera liggjandi á strönd í Hawai. Við viljum tileinka lagið til herra Israel Kamirikawa (ekki einu sinni láta ykkur detta í hug að bögga mig útaf stafsetningarvillum í nafninu á honum) maðurinn sem gerði Ukulele að því sem það er í dag
Smellið hér til að ná í lagið. Eða hér
sunnudagur, október 31, 2004
Ég rakst á þessa snilld um daginn og fannst The Crossroad verða styrkja þennan listamann. Þetta er William Shatner að taka Common People, gamla pulp lagið, og gerir það af fágætri snilld. Heyrst hafa raddir að þeir einu sem gætu tekið þetta eins vel væru The Crossroad en ég læt hlekk að laginu hér á síðunni ásamt því að ég fann annað lag með Shatner og það fylgir einnig með.
Common People
Rocket Man
Ég ætla að hafa Hver er ég leikinn aðeins frábrugðin því sem venjast skal að þessu sinni. Í þetta sinnið geta allir unnið þetta er einfaldlega spurning um hvað hverjum finnst. Ekki segja Ómar þó svo að hann hafi mjög líklega einhverntíman sagt þetta.
Hver er ég?
Ég er mikilvægasta mannvera sem hef á jörðinni verið.
fimmtudagur, október 28, 2004
Veikindi hafa komið illa niður á kallinum seinustu daga og því ekkert uppfært á síðunni. En á móti hefur sjónvarpsgláp farið fram úr öllum vonum og seinustu 3 daga hefur líklega verið horft meira á sjónvarp en allt árið. allt frá Terminator 2 til The L word sem er magnaður lesbíuþáttur á skjá einum. Alveg ótrúlegt hvað Hollywood lessur eru alltaf magnað flottar en þegar maður sér alvöru þá lítur hún út eins og Magga Steri.
Hver er ég?
Ég fæddist 18 Júlí 1918 í Transkei. Árið 1962 var ég dæmdur fyrir föðurlandssvik og var sendur á Robben eyju til að afplána dóm minn. Þar var ég í 27 ár.
mánudagur, október 25, 2004
Hver er ég?
1947 fæ ég mínar fyrstu mínútur af frægð þegar ég vinn fegurðarsamkeppni ungbarna í heimabæ mínum. Mitt upprunalega nafn var Farrokh (sama og Freddie) Bulsara. Trommarinn í hljómsveitini Smile (sem varð seinna meir hluti af hljómsveitinni minni) hafði þann kost að þegar á því þurfti gat hann trommað og sungið á sama tíma, sem kom sér vel oft á tíðum.
sunnudagur, október 24, 2004
Hver er ég?
Árið 1964 er mikil borgaraleg óreiða í heimalandi mínu og flutti ég því með fjölskyldu minni til Englands. Árið 1969 var ég í hljómsveitinni Wreckage og við spiluðum oft á sömu tónleikum og hljómsveitin Smile.
laugardagur, október 23, 2004
B-liðsmaður Vikunnar þessa vikuna er engin annar en Gylfi. Hann er nýstigin upp úr uppskurð og mætti galvaskur á þessa æfingu og átti stóran þátt í því að lið hans vann með yfirburðum 30-26. Hann sást oftar en ekki bruna upp miðjuna og átti ófáar sendingar sem orsökuðu mark.
Guffi... þetta er ekki meira mál en þetta
Hver er ég?
Ég fæddist árið 1946 í Zanzibar. Ég dýrkaði óperu, ballet og ketti
